Eru ekki allir í stuði?!?
25. apríl 2008 klukkan 00:26
Nú styttist í 16 júní og ég geri ráð fyrir að allir iði af spenningi. Ég vona að allir hafi fengið tölvupóstinn með nánari upplýsingum um hátíðina! Ef ekki þá eru hér nokkrir punktar.
Höllin mun opna klukkan 18:00 með fordrykk og fíneríi og þrírétta borðhald hefst stuttu eftir það. Það verða skemmtiatriði og söngur að hætti MA-inga og við munum svo kasta af okkur hvítu kollunum á miðnætti.
Hljómsveitin "Í svörtum fötum" mun spila undir trylltum dansleik og ætli Jónsi fari ekki úr að ofan eins og svo oft áður...isss það má ekki missa af flugþjónastrippi;) Hefð hefur skapast fyrir því að Jubilantar fái miðann ódýrari og finnst mér það ágætis hefð. Miðinn mun þá kosta 4700 kr fyrir okkur (í staðin fyrir 8700 kr). Ef einhver vill sleppa borðhaldinu sem ég mæli ekki með þá getur hann keypt einungis miða á ballið sem kostar 3000 kr. Bautinn sér um forsöluna og þær upplýsingar getið þið nálgast á www.bautinn.muna.is
Við eins árs stúdentar þurfum einnig að vera með skemmtiatriði og þið megið endilega koma með tillögur í komment!!!
Þið getið líka fylgst með undirbúningi hátíðinnar á heimasíðu 25 ára stúdenta www.ma1983.blog.is
Mætum öll æpandi hress og kát 16. júní!
kv Ranna

en ástrós og petra eru úti í skotlandi sem au-pair.. ég ætla ath. með mailin þeirra og senda þér!